Anna Helga Jónsdóttir er dósent í tölfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.
Hún lauk BS prófi í vélaverkfræði frá HÍ vorið 2003, meistaraprófi í hagnýttri stærðfræði frá
Danmarks Tekniske Universitet haustið 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá HÍ vorið 2015.
Hún hefur kennt tölfræði við DTU og HÍ síðan vorið 2006 og komið að námsefnisgerð í báðum skólum.
Sigrún Helga Lund er prófessor í tölfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
Hún lauk BS prófi í stærðfræði frá HÍ vorið 2004, hlaut kennsluréttindi í framhaldsskólum vorið 2007
og lauk doktorsprófi í tölfræði vorið 2014.
Hún hefur kennt stærðfræði og tölfræði við HÍ síðan haustið 2001.
Einnig hefur hún kennt og komið að námsefnisgerð við KHÍ, EHÍ, MH og í samstarfsverkefninu Bráðger börn.
Bjarki Þór Elvarsson er sérfræðingur á veiðiráðgjafasviði Hafrannsóknarstofnunar. Hann lauk BS prófi í stærðfræði
við Háskóla Íslands 2003, meistaraprófi í stærðfræði við Warwickháskóla 2005 og doktorsprófi í tölfræði við Háskóla Ísland 2015.
Hann hefur komið að tölfræðiráðgjöf og úrvinnslu með R í tengslum við störf sín hjá Tölfræðimiðstöð HÍ,
smíði áhættulíkana hjá áhættustýringu Glitnis og við stofnmat hjá Hafrannsóknastofnun.