Hnútaflækja =========== Förum nú í leik þar sem við myndum flækju á band og reynum að finna aðferð til að leysa flækjuna með hjálp stærðfræðinnar. Efni ---- - Tvö bönd (helst mislit, nokkuð þykk, um 1.5 m löng). Litirnir skipta ekki máli en auðvelda okkur að sjá hnútana. - Skriffæri og blað. Byrjun ------ - Gott er að vinna 4-5 saman í hóp. - Myndum ferhyrning á gólfinu og merkjum hornin á honum A, B, C og D. - Ef fimm taka þátt er sá fimmti ritari. - Þeir sem standa í A og D halda öðru bandinu á milli sín og þeir sem standa í B og C halda hinu bandinu á milli sín. .. image:: ./tangle_0.png :width: 65% :align: center Leikreglur ---------- Allir halda í sinn enda allan tímann. Búum til hnút á bandið með því að gera eitt af tvennu: - Víxla (V). Þeir sem standa í A og B skipta um stað þannig að sá sem var í B fer undir bandið hjá þeim sem var í A. .. image:: ./tangle_V.png :width: 65% :align: center - Snúa (S). Allir færa sig réttsælis (þannig að A->B, B->C, C->D og D->A). .. image:: ./tangle_S.png :width: 65% :align: center - Framkvæmum svo V og S aftur og aftur í einhverri röð þannig að hnútur myndast. Þetta eru einu leyfilegur hreyfingarnar. Við getum jafnvel hugsað um þetta sem dans! Spurningar ---------- - Þegar búið er að nota V og S í nokkur skipti þannig að hnútur er kominn á bandið, er þá hægt að leysa hann bara með því að nota V og S? - Hvernig förum við þá að því að leysa hann?